Dagur 1
18. apríl 2009
Ég gafst upp á öllu sem ég reyndi svo ég ákvað að prufa Crash Diet og er fyrsti dagurinn liðinn
Ég vaknaði í morgun og fékk mér þessar töflur í morgunmat, svo hádegi, svo í kaffitímanum fékk ég mér peru en ég var þó maður eigi aðalega bara lifa á töflunum
svo fékk ég mér núna áðan.. Í dag er ég búin að vera með vægan hausverk sem er eðlilegt af öllu leyti
Ég ætla blogga á hverjum degi og segja líðan mína, dagurinn í dag hefur verið mér erfiður því ég elska nammi og mm ég sakna matsins, langar í kjöt, fisk og bara allt name it.. en ætla ekki að gefast upp á þessu enda kostaði þetta 25þús
kveðja
Mutta89
Fimmtudagur
12. febrúar 2009
Smá fréttir, ég er búin að kaupa kort í ræktina og fer 3-5x í viku
Svo er ég að spila fótbolta 1x í viku sem er svaka stuð
En mér er ekkert að ganga að hætta nammi áttinu :’( einhver með ráð?
En ég hef grennst sé það á mér
svo er maginn ekki eins slappur hehe ;D
Fimmtudagur
5. febrúar 2009
Jæja í gær á Miðvikudegi var dagurinn svona
*kl 6 ~ vaknaði og fékk mér 1/2 bananna + vatnsglas
*kl 6:20 ~ út að labba
*kl 07:30 ~ herbó vanillu sjeik + vítamin og trefjatöflur
*kl 10 ~ herbó te og vatnsglas
*kl 12:30 ~ herbó jarðaberja sjeik
*kl 16 ~ brauð með skinku + vatnsglas
*kl 16:30 ~ ræktina
* kl 18:30 ~ hrísgrjónagraut með kanilsykri + peru
* kl 22:30 ~ sofa
En já dagurinn í dag er búinn að vera nokkurn veginn svona
kl 6 ~ vakna
kl 7:30 ~ herbó vanillu sjeik
kl 9 ~ lagði mig
kl 11 ~ vaknaði aftur
kl 11:30 ~ herbó jarðaberja sjeik
kl 12 ~ á fundi
kl 19:30 ~ pitsa 2sneiðar af 12″ hvítlauksbrauði, og 1 pitsusneið af 16″
Fer að sofa sennilega um 22 en ef ég og karlinn förum í bíó í kvöld þá fer ég að sofa um 1 leytið
Svo er það ræktin aftur á morgun kl 10, hlakka bara til
kveðja..
Þriðjudagur
27. janúar 2009
Veit ég hef ekkert bloggað í langan tíma en ég datt í nammið :’( Göngurnar og hlaupin héldust samt
Í gærmorgun tók ég og móðir mín göngutúr frá Keflavík útí Garð, tókum hundinn minn með og vá þetta var hressandi 13km ;D en ég var dauðþreytt allan daginn..
Í morgun skellti ég mér í göngutúr með hundinn og kom heim og borðaði hrökkbrauð, borðaði svo hrísgrjónagraut í hádeginu og fisk í kvöldmat
svo fékk ég mér aftur göngutúr með hundinn.
En er að fara sofa er svo hrikalega þreytt enda á ég erfitt með að sofna snemma en ætla mér það núna
Gengur Vel
9. janúar 2009
Átakið gengur vel, fæ mér hydroxycut 30mín fyrir morgunmat (herbalifesjeik) og svo aftur 30mín fyrir hádegismat. Fór í sund í gær og synti nokkarar ferðir og vá mér leið svo vel á eftir.
Langar geðveikt að kaupa kort í ræktina en ég á enga pening fyrir því, svo ég læt mig nægja að fara út að hlaupa eða labba, og í sundið
Er búin að vera minnka nammið en ekki alveg hætt, ætla minnka það bara smátt og smátt og svo hætta.
Dagurinn í dag á eftir að vera mjög góður, ætla í sund á eftir að synda með vinkonu minni og svo ætla ég út að hlaupa í kvöld
1. dagurinn
3. janúar 2009
Veit ég bloggaði ekki þegar ég ætlaði að blogga, en ég skelli inn bloggið sem átti að vera hérna inná á sunnudagskveldi
“
Það var vaknað snemma eða kl 7 og fengið sér hydroxycut töflu kl 7:05
svo borðað cheerios kl 7:35 síðan var Guðmundur Atli tekinn fram kl 8
og honum gefið graut, svo var bara leikið þar til við fórum að gera okkur
til fyrir göngutúrinn, lögðum af stað á labbið kl 9 og þegar heim var komið
var kl 9:40 svo göngutúrinn var þokkalega góður. Svo sat ég bara heima í
svitabaði og drakk vatn.
Síðan var haldið í bæinn og kíkt í kringluna og þar var sko labbað mikið,
svo þegar haldið var heim gaf mamma mér og dóttur minni súkkulaði og
svala. Já ég veit nammi er totally BANN. Svo í kvöldmat voru bara núðlur
en ég nennti ekki að elda :/ en dóttir mín fékk brauð og svona með.
Veit að núðlur eru með næstum enga næringu, ég fór svo að sofa kl 2.
“
En í gærmorgun vor gerðar 20 magaæfingar og um kvöldið var farið út að skokka og labba
með henni móður minni
Í dag gerði ég nokkuð það sama nema ég fór ein
Á morgun kemur mamma aftur að skokka og labba en hun ætlar bara vera með 3x i viku..
Fór á vigtina áðan og er 93kg svo það eru 18 more to go, 2 gone